Það kostar sitt að læra að keyra bíl. Það kostar að lágmarki í kringum 200.000 kr. en getur farið upp í kr. 300.000 kr. fyrir allan pakkann.
Þannig að þú mátt búast við að þurfa að greiða í kringum 200.000 - 300.000 kr. fyrir bilprófið.
Kostnaðurinn gæti skiptst upp á eftirfarandi máta:
Námsheimild frá sýslumanni | 4.000 kr. |
15 ökutímar (10.900 kr tíminn) | 163.500 kr. |
Námsbókin - Út í umferðina | 7.500 kr. |
Ökuskóli 1 (hjá okkur) | 12.500 kr. |
Ökuskóli 2 (hjá okkur) | 12.500 kr. |
Ökuskóli 3 | 44.500 kr. |
Bóklega prófið | 4.140 kr. |
Verklega prófið | 11.140 kr. |
Heildarverð | 260.280 kr. |
Margir vilja taka fleiri en 15 ökutíma hjá ökukennara og þurfa þar af leiðandi að greiða meira fyrir námið. Þá þurfa sumir að endurtaka verklega eða bóklega bílprófið og þá bætist við kostnaðinn.
Þannig það er allur gangur á þessu.
Til dæmis, ef þú tækir 20 ökunámstíma og féllir einu sinni í skriflega prófinu þá gæti kostnaðurinn litið svona út:
Námsheimild frá sýslumanni | 4.000 kr. |
20 ökutímar (10.900 kr. tíminn) | 218.000 kr. |
Námsbókin - Út í umferðina | 7.500 kr. |
Ökuskóli 1 (hjá okkur) | 12.500 kr. |
Ökuskóli 2 (hjá okkur) | 12.500 kr. |
Ökuskóli 3 | 44.500 kr. |
Bóklega prófið | 8.280 kr. |
Verklega prófið | 11.140 kr. |
Heildarverð | 318.920 kr. |
Uppfært 1. Október 2020